
Opnunarhátíð UNGA hefst í Tjarnarbíói fimmtudaginn 25. apríl kl. 14.00.
Við byrjum í Tjarnarbíói með frábæru atriði frá Leikhópnum Lottu.
Göngum síðan út í Ráðhús Reykjavíkur og sjáum á leiðinni frábær sirkusatriði frá Hringleik.
Þegar í ráðhúsið er komið ætla sirkusnemendur úr Borgarholtsskóla að sýna listir sínar.
Síðan hefst fyrsta sýning hátíðarinnar, Sjáðu mamma, engar hendur, í Ráðhúsinu.
Það verða engar ræður, bara tóm gleði.

