
Bryndís Ingvarsdóttir Quidditch-þjálfari verður með klukkutíma langt kynningarnámskeið í Quidditch á túninu við suðvesturhorn Reykjavíkurtjarnar. Þar mun hún útskýra grunnatriði íþróttarinnar og þátttakendur fá svo að spreyta sig.
Engir flugkústar eru á staðnum en önnur tól eru til staðar og þátttakendur mega takast eins mikið á loft og þeir vilja.

